Jæja ákvað að fyrst ég hef nákvæmlega ekkert að gera í vinnunni í augnablikinu og nenni ekki að standa upp og fara og fá mér óhollustu í lungun að ég myndi bara skella einni bloggfærslu hingað inn. Sko ég veit ekkert hvað ég ætla að skrifa um, þótt að fyrirsögnin segir að ég ætli að skrifa um áramótin og svona þá bara kemur það í ljós hvað puttarnir á mér ákveða að bulla mikið ;)
Jæja ætti maður kannski að skrifa aðeins eins og fyrirsögnin segir? Já held það sko... Á gamlársdag var ég að vinna um morguninn, skutlaði stelpu sem ég vinn með í bæinn, náði í Atla og Krissa í bæinn, fórum í hveró að borða kalkún hjá Huldu, fórum svo heim á selfoss að taka okkur til fyrir djamm, fórum í bæinn, villtumst á leiðinni til frænku hans Atla í vesturbænum, fundum hana svo loksins eftir mikið erfiði, fórum svo til Haffa að byrja sötrið....jáhá þá er þetta talið upp. Nema það að eftir að ég var orðin hálf taugaveikluð eftir flugeldana og hálf heyrnarlaus (eða þ.e.a.s. meira en vanalega hehe) þá skelltum við okkur niður í bæ ;) Held hreinlega að það hafi verið fult tungl það var svo mikið af slagsmálum að maður hefur liggur við ekki tölu á þeim...hehe nei segi svona :) En allavega þá nenni ég ekki að skrifa um það. En þetta var algjer snilld þetta kvöld/nótt og eftir djammið var farið heim til Lilju að drekka aðeins meira og hafa það gott. Þynnkan eftir þetta djamm er held ég með þeim verstu og held ég að fleiri en ein manneskja séu sammála mér ;)
Hmm....hvað á ég að skrifa meira?? Hey jú skrapp á djammið í gær. Byrjaði kvöldið á að kíkja á hann Val minn með Elvari þar sem ég klippti hárið á mér sjálf hehe ;) Eftir það var skellt sér heim til hennar Erlu, eftir smá rúnt, að sötra og skiptast á vodka og tannkremssögum hahahaha! Einkahúmor ;) Eftir það var förinni heitið á 5 mín stopp á glaumbar. Svo var farið á hressó í smá stund og svo apótekið...var einn bar á milli en man ekkert hvað hann heitir hehe. Hittum við Villa kallinn á hressó víst og elltum hann útum allar trissur hehe ;) Svo eftir djammið voru ég og Elvar svo heppin að einhver 40 ára gömul kerling sem var eitthvað hrifin af Elvari bauð okkur að fá far með leigubílnum sínum haha....Evar eftirsótti ;) Fórum við heim til Vals og lögðum okkur smá.....
Veit ekkert hvort ég nenni hreinlega að skrifa meira?? Nah held ekki sko....Veit ekki einu sinni hvort það sé skiljanlegt sem ég er búin að vera að skrifa hérna útaf ég er svo kexrugluð af þynnku eftir gærkvöldið/nóttina og jah já maður er á næturvakt og þreytt...verðið bara að afsaka þessar örfáu hræður sem lesa þetta ;)
Jæja ætla loksins að standa upp og fá mér ógeð í lungun!
Jáhá ég er búin að komast að ýmsu núna...eins og t.d. sumum gaurum er bara nákvæmlega sama um það að maður sé trúlofuð og að þeir séu sjálfur með stelpum.. Jáh það er ýmislegt skrítið sem gerist á djammi hérna á skaganum. Lennti t.d. í rassakáfi á mörkinni frá manni sem jáh ég vil ekki endilega segja að ég vilji nokkurn tímann fá káf frá sama hvort ég sé á lausu eða hvað. Svo svona gerðist meira sem ég ætla ekkert að vera að tala um svo ég sé ekki að særa einhvern sem var kannski ekki að meina hlutina alveg eins og ég tók þeim...veit ekki almennilega hvort þetta var rétt hjá mér eða ekki. Kemur líklega aldrei í ljós. Haha svo komst ég að því að einn viss Raggi sem ég hafði aldrei séð en bara heyrt um, vissi alveg nákvæmlega hver eg væri :Þ Já hann vissi að fyrir 4rum til 5 árum ca. voru ég og Elísa prests nokkuð góðar vinkonur og mikið að brasa saman, vissi að ég fór reglulega í göngutúra og fannst honum töff að ég var eina stelpan á þeim aldri sem þorði að reikja úti á götu og vera alveg sama, hann veit bílnúmerið mitt núna og hvernig bíl ég er á og hellings meira :) Hehe skondið...enda veit hann allt um alla ;) En já ég var víst í partýi hjá Katrínu "litlu" í gær og það var bara mjög fínt. Fór svo með Sibba og Gulla á mörkina og lennti í að vera eina pulsubrauðið umkringd pulsum allan tímann á mörkinni og var látið Ragga "passa" mig :Þ Svo eftir mörkina fengum ég, Sibbi og Raggi far með Ingvari til Katrínar aftur og haldið áfram að djamma þar. Mikið af hlutum sem gerðust þar eins og t.d., ég snerti voða lítið jörðina vegna þess að viss gaur hélt á mér aftur og aftur, Diddi grátbað mig um að fara ekki (hehe smá leiksigur hjá honum þar ;) ), ég að spurja Friendsspurninga og margt fleira :) Voða skemmtilegt kvöld og hálf nótt ;) En ég verð að viðurkenna að ég saknaði Daníels og Gunna ekkert smá...öss hvað maður getur saknað þeirra sem maður elskar eftir svona lítinn tíma frá þeim. Það var líka æði að skríða upp í heitt rúmmið til Gunna þegar ég kom heim...ekki amarlegt það :)
Jæja svo í kvöld og á morgun gisti ég mjög líklega hjá mömmu og pabba þar sem Gunni verður á næturvakt og ég hata að vera ein heima. Næs að fá að vera bara hjá settinu og leifa þeim líka að dúllast við Daníel :)
En já nenni ekki að skrifa meira...Adios :*
20. janúar 2007 klukkan 21:30
Katrín Erika Hjálmarsdóttir 2 athugasemdir
Já núna um helgina var nú sko djammað, vegna þess að Íris og Óli kærastinn hennar komu í heimsókn úr bænum, og ég get nú sagt það að það gerirst ekki oft Jæja allavega þá vorum við með smá gleði hérna heima og vorum við; Ég, Gunni, Íris, Óli, Hadda, Anna Lísa og Frikki. Hehe sorry ef ég er að gleyma einhverjum! En já það var ekkert smá gaman! Vorum öll á spjallinu og að fá okkur í glas, það var gert kaffi með nýju kaffikönnunni í fysta skiptið og svo var bara skellt sér á mörkina Vá ég held að ég hafi næstum dansað af mér lappirnar á mörkinni...ekkert smá gaman. Svo um svona hálf þrjú leitið skutlaði Frikki Írisi og Óla heim og fengum við að fljóta með. Hehe takk Frikki fyrir pulsurnar Þegar við komum heim til þeirra þá settumst við inn og fengum okkur sígó og spjölluðum aðeins. Já ég fékk eitt stykki buxur fyrir vikið Hehe.... En já svo var ferðinni bara heitið heim á leið. Þegar við komum á skagann skutlaði Frikki mér og Gunna heim og þar settum við eina bestu mynd ever í tækið, eða það er airplane 2! Haha snilldar mynd! Já við vorum bara í slökun eftir djammið enda harkan á þessu... Svo um tvö leitið daginn eftir fórum við að ná í pjakkinn til mömmu og pabba. Vá hvað ég var búin að sakna hans!! Hann er svo mikið æði. Svo eftir að við náðum í hann var farið beinnt í skútuna að fá sér eitt stykki skútupulsu! Nammi namm! Smá þynnku matur. Svo var það nú bara vídjó og næsheit að mig minnir. Tókum You, me and Dupree og 10 things I hate about you. Bara báðar mjög skemmtilegar.
Vá já gleymdi að segja frá vað gerðist í vinnunni þegar ég var ný mætt á mánudaginn! Það leið yfir eina greyið konuna og hún fékk svaka skurð á hausinn eftir fallið..greyið Kom sjúkrabíll að ná í hana og svoleiðis.. Æji ef ég hefði kannski komið aðeins fyrr í vinnuna þá hefði ég kannski getað náð að grípa hana þar sem hún var rétt hjá þar sem maður þvær á sér hendurnar fyrir vinnuna.. Æji það er alltaf hægt að vera gáfaður eftir á.
Jæja nenni ekki að skrifa meira. Adios :*
10. janúar 2007 klukkan 20:22
Katrín Erika Hjálmarsdóttir Engin athugasemd
Já ekki það að einhver lesi þetta blogg, en ég ætlði bara að óska öllum gleðilegt nýtt ár og segja að það er núna greinilegt hverjir eru vinir manns. En já nenni ekki að vesenast með það. En já gamlárskvöld var varið hjá Ingu Ósk systur hans pabba og eldaði Níels frændi (kokkur) alveg dýrindis máltíð :D Hehe gátum ekki verið lengi þar sem Daníel var eitthvað að flippa af spenningi ;) Þannig við fórum með hann til mömmu hans Gunna í pössun... Og já btw mér tókst að gera það ómögulega! Að overdosa smá á asmapústi!! Ji bara ég.... En já svo var það bara skaupið og smá gleði hér heima. Það var ágætt.
02. janúar 2007 klukkan 18:27
Katrín Erika Hjálmarsdóttir 4 athugasemdir
Jæja þá eru jólin víst gengin í garð og allir í jólastuði ;) Ég fékk nú nokkuð góðar gjafir og bara glöð með það. Daníel fékk alveg helling af gjöfum eins og t.d. dót frá ömmu sinni og afa sem hoppar upp og gerir hljóð þegar hann togar í takka, hringi til að setja á staur frá Líney og Róbert, föt frá Sigrúnu og Jónínu frænkum, föt frá hinni ömmu sinni og Árna afa, músahringlu frá bræðrum sínum, smekkbuxur frá Baldri Frosta frænda, sokkabuxur og skó frá langömmu sinni og langafa, göngugrind frá mömmu sinni og pabba, úlpu og inniskó frá hinni langömmu sinni og peysu frá Katý frænku sinni og fjölskyldu :) Svaka fínerí hjá honum þessi jólin! hehe... Já og ég gleymdi alltaf að segja það að svona í tilefni jólanna trúlofuðu ég og Gunni okkur Alveg æðisleg jól svona með mestu! Við vorum nú bara heima á aðfangadag og heppnaðist maturinn hjá mér bara nokkuð vel!! Hehe gott mál. Svo vorum við jóladag hjá mömmu minni og pabba í hangikjéts máltíð og svoleiðis og svo fór Gunni með pjakkinn til mömmu sinnar og Árna í annan í jólum hádegismat. Ég komst því miður ekki með vegna nokkurs sem ég nenni ekki að skrifa hérna. Já bara nokkuð góð jól verð ég að segja. Ohh...svo er ég að fara að vinna á morgun. Nenni því svo ekki en maður verður víst að vinna fyrir matnum sínum ;)
Jæja ég nenni ekki að skrifa meira núna í augnablikinu þannig bara adios amigos :)
26. desember 2006 klukkan 19:28
Katrín Erika Hjálmarsdóttir 2 athugasemdir
Jæja þá er ég komin með enn eitt bloggið til að tjékka hvort þetta sé nú ekki eitthvað skárra en blog central Já já í dag var bara vinna til 11! JIBBÍ!! Já en svona til að gera þetta ömulegra fyrir hinar konurnar sem eru ekki að vinna frá 8-12 þá þurftu þær að mæta klukkan 6!!! Dauðvorkenni þeim... Já svo eftir vinnu fór ég beinnt í það að kaupa mér Roastbeef langloku Haha svaka megrun... Jám svo eftir það var bara horft á granna og svo skellt sér í krónuna að kaupa í jólamatinn! Já hehe svo vorum við svo blönk að við urðum að fara til Einsa í Einarsbúð og betla þar út að fá að skrifa þetta hjá okkur en það var auðvitað ekkert mál, ég meina hver getur sagt nei við mig?? Haha! En já ég þurfti að kaupa allt í humarsúpuna sem ég mun hafa á aðfangadag og svo þurfti að kaupa eftirrétt þar sem ég er ekki alveg jafn dugleg í því að skella mér út í að gera eftirrétt líka Hehe jamm en ég mun hinsvegar elda allt annað, t.d. eins og ég sagði humarsúpuna í forrétt, bayonneskinku með púðursykri og tvær tegundir af kartöflum eða sko sætar og saltar og svo er það bara eftirrétturinn sem ég geri ekki! Haha svo dugleg sko... En já erum búin að skreyta jólatréð og allt að verða sæmilegt hérna Ætlum hins vegar ekki að kveikja á trénu fyrr en klukkan 6 á aðfangadag. Ekkert gaman ef maður gerir það fyrr! Jáh svo held ég bara að það sé ekkert meira að frétta frá mér...
22. desember 2006 klukkan 21:36
Katrín Erika Hjálmarsdóttir 1 athugasemd